Styðjum Indymedia, skrifum undir!

October 31, 2004 | Comments Off

Hvet alla sem lesa þetta til að setja nafn sitt á yfirlýsingu um tjáningarfrelsi Indymedia. Sjá smá forsögu.

Bin Laden hjálpar Bush í baráttunni

October 31, 2004 | Comments Off

“„Frjálslyndir hunsa ekki öryggi þeirra, þvert á það sem Bush gerir, sem segir okkur hata frelsið,“
segir bin Laden, og fréttaskýrendur segja að þessi orð megi ef til vill túlka sem stuðningsyfirlýsingu við John Kerry, forsetaframbjóðanda demókrata, og andstæðing Bush.”
Lengi lifir í gömlum glæðum…
Viðbót: Vésteinn er vitrænn um þetta - Lesið líka eldri færslur hans […]

Landsbankinn og (ó)öryggi á netinu

October 29, 2004 | Comments Off

Síðasta laugardag spurði ég spurningarinnar: “Er nýji Landsbankavefurinn virkilega ekki með dulkóðun á notendanafni og lykilorði af forsíðu?” og frekar en ég reyni að umorða niðurstöðuna þá er best að ég láti skrif Bjarna standa hér að neðan, hann veit miklu meira um þetta en ég :)

Ætli kallinn fari að tilkynna sig inn hjá gömlu vinunum sínum í Pentagon? Bush virðist þurfa á honum að halda, ekki víst að kosningasvindl hjá litla bróður dugi í þetta skiptið. Hvað heldur þú, “finna” þeir Osama bin Laden rétt fyrir kosningarnar?

Afhverju núna?

October 23, 2004 | Comments Off

“Frá 16. október til 15. mars er sýningin í Végarði á framkvæmdum í Kárahnjúkum aðeins opin fyrir hópa samkvæmt samkomulagi. Þeir sem vilja heimsækja sjálft framkvæmdasvæðið verða að tilkynna komu sína.”
Svosem ekkert að því að menn vilji gæta öryggis þarna. En afhverju er þetta sett í gang núna? Hefur hættan á svæðinu aukist? Hræddir við […]

Skrítinn heimur

October 23, 2004 | 11 Comments

1. Er nýji Landsbankavefurinn virkilega ekki með dulkóðun á notendanafni og lykilorði af forsíðu?
2. DV í gær: “Fáir menn koma vondu orði á stétt handrukkara”. Fyrrverandi handrukkari um fyrrverandi kollega sína.
Fæ ég ekki verðlaun fyrir að blanda þessu saman í eina færslu?

Nú stefnir víst í alþjóðleg mótmæli við Kárahnjúka næsta sumar. Ég mæti pottþétt! Það er ekki of seint að hætta við því það versta er lónið sem ekki er farið að renna í enn þá. Ætli við sjáum núna ráðandi öfl fara að kasta skít í erlenda náttúruverndarsinna og eins og þeir gerðu við þá […]

Uppfæra alla vafra :)

October 22, 2004 | Comments Off

Users of IE, Firefox, Opera, Safari and Konqueror all need to patch their browsers or implement workarounds this week following the release of a “full house” of internet client bug reports.
A bumper crop of browser glitches | The Register

Erum við á 19. öld? Hvað er að gerast í dómskerfinu? Héraðsdómari á Reykjanesi dæmdi mann í skilorðsbundin dóm fyrir að buffa konuna sína. Engin spurning um sekt, hann játaði en af því að sambandið hafði verið “stormasamt” (orð dómarans yfir reglulegt heimilisofbeldi) og maðurinn hélt því fram að konan hefði haldið fram hjá sér […]

Íslensku vefverðlaunin 2004

October 20, 2004 | Comments Off

Helvíti þykir mér koma seint frétt á mbl.is um tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2004. Síðasti séns til að skila inn tilnefningum er í dag. Vonandi er þetta klaufaskapur en ekki aðferð til að fækka tilnefningum…
Umræða ári síðar

keep looking »