Enn um 9/11

September 27, 2004 | 1 Comment

Þetta er eflaust gamalt en ég hef aldrei séð það áður. Hvað var það sem gerði gat á Pentagon en skildi ekki eftir neitt brak? Pentalawn 2000 er síðan önnur útgáfa af sama og Hunt the Boeing er það fyrsta sem ég sá um þetta, fyrir löngu síðan.
Mér leiðist að láta ljúga […]

Hugsaðu þér hlut…

September 26, 2004 | 2 Comments

Merkilegur andskoti, 20Q fattaði í 19 spurningum að ég var að hugsa um plastflösku. Þessi menning okkar er líklega einfaldari en manni finnst dagsdaglega. Og við sjálf þá líka :) Meiri upplýsingar

Nú blöskrar mér. Ég stend með grunnskólakennurum í þeirra verkfalli enda launin lág og starfið vanmetið af flestum. En andskotinn hafi það, að veita ekki undanþágur til kennslu fatlaðra barna er ómannúðlegur skepnuskapur. Og svo kastar tólfunum: “…og á þessum tímapunkti geri ég í rauninni engan greinarmun á fötluðum nemendum og ófötluðum,” sagði Þórarna.” Held […]

Ástþór er snillingur, öh sjúklingur, bæði?

September 23, 2004 | Comments Off

Mér finnst alveg frábært hjá Ástþóri að snúa papparassatöktunum í andlitið á Illuga. Nú er bara næsta mál að einhver ofsæki nokkra ráðherra svona og þá fáum við lög sem banna þetta :)

Eitt og sér þess virði að ná sér í Firefox, Find er snilld, eins og það á að vera.

Sólveig Pétursdóttir söm við sig

September 22, 2004 | Comments Off

Traust Íslendinga til bandamanna sinna og upplýsinga þeirra um forsendur Íraksstríðsins er ennþá til staðar, segir Sólveig Pétursdóttir, formaður utanríkismálanefndar.
Hún segir það áhyggjuefni hafi forsætisráðherra borist upplýsingar sem gefi ástæðu til að ætla þær upplýsingar rangar.VÍSIR.IS » Fréttir » Frétt

Echelon

September 22, 2004 | Comments Off

Áhugaverð grein um Echelon, ýmislegt þarna sem ég vissi allavega ekki.

Spindoktorverðlaunin til skuli@oz.com

September 21, 2004 | Comments Off

Ef þú hélst að Oz væri farið á hausinn þá er það misskilningur. Skúli Mogensen hlýtur að eiga skilið að fá einhver verðlaun fyrir að takast þetta. Gullkorn í lokin frá Skúla úr ofantengdri frétt:
“Þá er sagt að hugsanlegt sé að stærra fyrirtæki geri yfirtökutilboð í OZ. Skúli segir: Við munum skoða öll tækifæri […]

Handbók uppfærð

September 19, 2004 | Comments Off

Var að uppfæra handbókina mína, lagaði einhverjar villur. Engar alvarlegar en nógu pirrandi til að ég vildi ekki hafa þær fram á næstu önn. Náðu þér í eintak

Firefox, say no more (tókst ekki alveg)

September 19, 2004 | Comments Off

Jæja. Þú sem ert enn að nota Internet Explorer. Nú er komið að því. Firefox 1.0PR er einfaldlega það gott forrit að þú getur ekki gert þér það að skipta ekki yfir. Í það minnsta prófa. Og njóta þess strax að losna við sprettiglugga með auglýsingum, geta tekið bókamerki af RSS vefsvæða (skoðað lista yfir […]

keep looking »