May the Force be with us

February 29, 2004 | Comments Off

Gömul frétt en ný fyrir mér, vísindamenn “staðfesta” að 70% alheimsins er dökk orka, 25% dökkt efni en aðeins 5% þetta venjulega efni sem við þekkjum öll og kunnum svo vel við… Lestu greinina ef þetta hljómar eins og tóm þynnkusteypa!

Hjálp, tími óskast!

February 28, 2004 | Comments Off

Mig vantar ca. klukkutíma núna og síðan væri gott að fá einn til tvo tíma á dag á næstu vikum. Má samt alveg vera meira…

Grænir ísbirnir

February 25, 2004 | 1 Comment

Mogginn með frábæra frétt um græna ísbirni í dýragarðinum í Singapore. Ef greining dýragarðsins er rétt þá hefði ég haldið að ljóshært fólk yrði grænhært ef það býr nógu lengi í Singapore. En ég er náttúrulega enginn vísindamaður…

Kannski engar fréttir fyrir þá sem hafa hugsað um málið en mikið væri gott ef auglýsendur myndu fatta þetta líka. Ef einhverjum finnst áhugavert að fá upp sprettiglugga (e. pop-up windows) þá á ég enn eftir að hitta þann aðila, allir sem ég hef fylgst með loka þeim um leið og þeir sjá þá.

isl-web póstlistinn horfinn

February 24, 2004 | Comments Off

Er einhver sem getur upplýst mig um hvað varð af isl-web póstlistanum? Sama hvort http://lists.disill.is/mailman/listinfo/isl-web eða http://lists.disill.is/pipermail/isl-web/ er notuð. Bréf sem ég var að senda á listann kom í hausinn á mér aftur. Einhver sem veit eitthvað?

Heimur á hrynjandi hveli

February 24, 2004 | Comments Off

Observer var með frétt um um hrikalega Pentagon-skýrslu um gróðurhúsaáhrifin. Og reyndar skilst mér að ansi margir miðlar og sjáendur séu bunir að sjá þetta fyrir löngu síðan. Helstu atriði Pentagon skýrslunnar

Internetið gleður

February 24, 2004 | Comments Off

Eins og allir vita? þá hefur samkynhneigðum pörum verið heimilt að gifta sig í San Francisco síðan fyrir stuttu síðan. Við mikla hneykslun íhaldssamra, hvort sem þeir heita Schwarzenegger eða Bush. Enda ekkert skrítið að þeir hneykslist með sína flekklausu fortíð. En margir samgleðjast og sýna það í verki, óháð landfræðilegum mörkum. Frábært framtak.

Ef trúa skal DV í dag þá tilkynnti borgarfulltrúinn Gísli Marteinn Baldursson á fundi borgarstjórnar síðasta fimmtudag að borgarfulltrúanum Helga Hjörvari yrði sko ekki boðið í Laugardagskvöld með Gísla Marteini.

Þetta blessaða RSS

February 19, 2004 | 2 Comments

RSS er í tísku, svo mikið er víst. Og ekki að ástæðulausu. Mér skilst að ég sé með RSS af þessu Hjali mínu, alveg án þess að ég hafi til þess unnið á neinn hátt, nema kannski með því að komast í gegnum uppsetningu á Movable Type.
Fyrir alla þá sem finnst vont að vita […]

Bush, tunglið og Mars

February 19, 2004 | 1 Comment

Forvitnilegt að lesa þessa Reuters frétt um Bush, tunglið og alla orkuna sem þar er geymd.

keep looking »