Frábært veður

December 29, 2003 | 1 Comment

Var búinn að ákveða að setja ekki neitt hér nema það væri einhver pæling á bakvið, leiðist sjálfum að lesa blogg sem bara er um hversdagslega hluti. Held mig við irc til að hjala um það sem lítið sem ekkert er.
En þessi snjór er alveg frábær, algjörlega málið. Vona að hann haldist sem lengst!

Gleðileg jól :)

December 25, 2003 | 1 Comment

Það eiginlega segir þetta allt :) Hafið það gott.

Er einhver munur á beinum fyrirmælum ráðherra og yfirlýsingum í fjölmiðlum? Er ekki nokkuð ljóst að undirmenn ráðherra telji rétt að hlýða yfirlýsingum í fjölmiðlum frekar en taka sénsinn á að vera sagt upp?

Er þörf á sjálfstæðum fréttaflutningi á Íslandi? Er hægt að gera það án þess að reka fréttastofu með ærnum tilkostnaði og hagsmunatengslum? Hver þá og hvernig?

Vefsmíðahandbókin mín

December 16, 2003 | Comments Off

Búinn að vera að fá fyrirspurnir um vefsmíðahandbókina mína, hvar hægt sé að kaupa hana og því rétt að segja ykkur frá því að á nýju ári verður hægt að ná í hana á Netinu, án endurgjalds. Ég þarf að uppfæra núverandi útgáfu og reikna með að komast í það í jólafríinu. Læt ykkur vita […]

frettir.com dauðar, lengi lifi fréttir

December 14, 2003 | Comments Off

Vondar fréttir, Steingrímur búinn að gefast upp á frettir.com og án þess að hafa sjálfur reynslu af því að vera bloggfíkill í afvötnun þá gæti ég trúað að þetta væri endanlegt.
En það skrítna í þessu er samt síðasta fréttin á frettir.com:
“Næsti - Þetta er hægt, það þarf ekki risabatterí til að segja fréttir. Hver […]

Hefst nú Hjalið

December 13, 2003 | 1 Comment

Jæja, kennslu lokið, yfirferð að mestu og lætin að baki. Fjúff. Og þá er að
sjá til hvort þetta blessaða blogg er eitthvað sem hentar mér. Búið að
standa til lengi að prófa og nú er komið að því.
Prófaði helling af kerfum og endaði með að lítast best á WordPress. Planið er að halda Hjalinu […]